Laus störf til umsóknar fyrir lækna og læknanema við HSU á Selfossi sumarið 2023
Laus störf til umsóknar fyrir lækna og læknanema við HSU á Selfossi sumarið 2023
Við auglýsum eftir læknum og læknanemum til afleysinga næsta sumar við heilsugæsluna og bráðamóttökuna á Selfossi.
Heilsugæslan á Selfossi sinnir Árborg og nærliggjandi byggðum. Við stöðina eru skráðir um 11þúsund skjólstæðingar og er þannig ein stærsta heilsugæslan á landsbyggðinni.
Bráðamóttakan á Selfossi sinnir Suðurlandi öllu og er orðin ein umfangssmesta bráðamóttakan á landsbyggðinni.
Starfsstöðvar þessar vinnar þétt saman og eru skipaðar frábæru starfsfólki. Aðgengi að blóðrannsókn og myndarannsókn er gott.
Öflugur stuðningur frá sérfræðingum er á vöktunum.
Sumarstarf við heilsugæsluna og bráðamóttökuna á Selfossi er frábært tækifræi til að kynnast heilsugæslu og bráðaþjónustu út á landi í öruggu umhverfi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almennar lækningar
Hæfniskröfur
- Íslenskt lækningaleyfi
- Góð íslenskukunnátta
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Hæfni í tjáningu í ræðu og riti
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Upphafsdagur og starfshlutfall er samkomulag og semja má um hvernig starfið skiptist niður á milli heilsugæslu og bráðamóttöku og sömuleiðis um fyrirkomulag vakta.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Arnar Þór Guðmundsson
-
[email protected]
Jóhann Már Andersen
-
[email protected]