Sumarafleysingar ræstimiðstöð - Starfsmaður í ræstingu
Sumarafleysingar ræstimiðstöð - Starfsmaður í ræstingu
Lausar eru til umsókna stöður starfsmanna í ræstingu vegna sumarafleysinga.
Næsti yfirmaður er Erla Sigurgeirsdóttir forstöðumaður ræstimiðstöðvar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn störf við ræstingar.
Hæfniskröfur
- Umsækjendur skulu hafa almenna þekkingu, auk þess sem lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Eining - Iðja hafa gert.
Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil. Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is
Við ráðningar í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru: ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI. Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 20.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Erla Sigurgeirsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Hulda Sigríður Ringsted
-
[email protected]
-
463-0100