Hjúkrunarfræðingar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri
Hjúkrunarfræðingar/nemar í sumarafleysingar í heimahjúkrun á Akureyri
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Akureyri óskar eftir hjúkrunarfræðingum og hjúkrunarnemum í heimahjúkrun sumarafleysingar. Ráðningartími er frá 15. maí til 15. september 2023 eða samkv. samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vitjanir í heimahús
- Vinna með skjólstæðingum og aðstandendum þeirra
- Vinna í teymum sjúkraliða og hjúkrunarfræðinga
Hæfniskröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og íslenskt starfsleyfi, staðfesting á námi fyrir nema
- Bílpróf er skilyrði
- Æskileg reynsla í heimahjúkrun
- Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvæðni og sveigjanleiki
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Með umsókn skal fylgja afrit af prófskirteini, íslenskt hjúkrunarleyfi og náms- og starfsferilsskrá. Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 60-90%
Umsóknarfrestur er til og með 06.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Eva Björg Guðmundsdóttir, Deildarstjóri - [email protected] - 517 6510