Afleysing - Sjúkraþjálfari á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Afleysing - Sjúkraþjálfari á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Lýsing - inngangur
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða sjúkraþjálfara til starfa. Um er að ræða afleysingu vegna fæðingarorlofs í eitt ár. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf. Sjúkraþjálfari starfar í nánu samstarfi við fagfólk á deildum stofnunarinnar. Starfssvið eru m.a. almenn legudeild, hjúkrunarheimilið Víðihlíð, hjartaendurhæfing og hreyfistjórnun. Sjúkraþjálfarar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn.
Hæfniskröfur
- Sjúkraþjálfari með íslenskt starfsleyfi
- Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
- Faglegur metnaður og vandvirkni
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Hlýtt og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Starfsreynsla er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag sjúkraþjálfara hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út. Starfshlutfall er samkomulag.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Sara Guðmundsdóttir - [email protected] - 4220500