Starf við skógrækt og ræktunarstöð á Tumastöðum
Starf við skógrækt og ræktunarstöð á Tumastöðum
Vilt þú taka þátt í grænni framtíð?
Skógræktin óskar eftir að ráða starfsmann til fjölbreyttra starfa við skógrækt á starfstöð sína Tumastöðum í Fljótshlíð. Þetta er framtíðarstarf á þjóðskógasviði á Suðurlandi með starfstöð að Tumastöðum. Leitað er að öflugu fólki sem er tilbúið að takast á við fjölbreytt störf við ræktunarstöð og almenn skógarstörf. Umsóknarfrestur er til 10. febrúar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við ræktunarstöð og í skógi
- Þátttaka í skipulagi, framkvæmd, úttektum og skýrslugerð vegna grisjunar- og gróðursetningarverkefna
- Ýmis störf við úrvinnslu á viðarafurðum
- Ýmis viðhaldsverkefni tengd vinnuvélum
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Próf í skógtækni, skógfræði eða garðyrkju æskilegt
- Almenn tölvukunnátta
- Enskukunnátta æskileg
- Vinnuvélaréttindi æskileg
- Þekking á viðhaldi véla
- Jákvæðni og hæfni í mannlegum samskiptum
- Metnaður, skipulag, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Æskilegt er að umsækjandi geti hafið störf sem fyrst.
Launakjör eru samkvæmt kjarasamningum opinberra starfsmanna. Um starfskjör, réttindi og skyldur gilda að öðru leyti lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr 70/1996.
Umsóknarfrestur er til og með 10. febrúar nk.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 10.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Trausti Jóhannsson, Skógarvörður á Suðurlandi - [email protected]