Sumarstörf 2023 - Almenn störf í lóðarumsjón
Sumarstörf 2023 - Almenn störf í lóðarumsjón
Við óskum eftir einstaklingum í fjölbreytt störf við lóðarumsjón á Landspítala.
Hér geta einstaklingar sett inn umsókn sem hafa áhuga á sumarafleysingum við almenn störf í lóðarumsjón sumarið 2023.
Vinsamlegast takið fram ef þið hafið unnið áður á Landspítala, með því að skrá í reitinn Annað neðst á umsóknareyðublaðinu. Mikilvægt er að umsókn sé vel fyllt út. Fríðindi sem fylgja starfi á Landspítala eru 36 stunda vinnuvika ásamt fyrsta flokks mötuneyti.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Almenn umhirða á lóðum Landspítala í samræmi við umhverfisstefnu spítalans
- Gróðursetning og umhirða gróðursvæða
Hæfniskröfur
- Rík þjónustulund og jákvæðni
- Hæfni í mannlegum samskiptum
- Góð íslenskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum ráðingarkerfi ríkisins. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. Með umsókn skal fylgja starfsferilskrá þar sem nám og fyrri starfsreynsla er tilgreind.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, almenn störf, þjónustustörf, garðyrkja
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Nánari upplýsingar veitir
Magnús Már Vilhjálmsson - [email protected]