Hjúkrunarfræðingur/nemi - Neskaupstaður - Heilsugæsla - SUMARAFLEYSING 2023
Hjúkrunarfræðingur/nemi - Neskaupstaður - Heilsugæsla - SUMARAFLEYSING 2023
Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða í sumarafleysingar hjúkrunarfræðing eða hjúkrunarfræðinema á heilsugæslu í Neskaupstað. Starfshlutfall er 50% eða samkvæmt samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn heilsugæsluþjónusta.
Hæfniskröfur
Íslenskt hjúkrunarleyfi eða staðfesting á námi. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 50%
Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pétursdóttir
-
[email protected]
-
618-1904
Borghildur F. Kristjánsdóttir
-
[email protected]
-
470-1482 / 868-8725