Sjúkraliði - heilsugæsla - Djúpivogur/Breiðdalsvík - SUMARAFLEYSING 2023
Sjúkraliði - heilsugæsla - Djúpivogur/Breiðdalsvík - SUMARAFLEYSING 2023
Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða sjúkraliða til starfa í heimahjúkrun heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og nærsveitum. Um er að ræða sumarafleysingu, 40% starfshlutfall.
Helstu verkefni og ábyrgð
Heimahjúkrun heilsugæslu HSA sem sinnir Djúpavogi, Breiðdalsvík og nærsveitum.
Hæfniskröfur
Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin, sem og almenn ökuréttindi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA.
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.
Starfshlutfall er 40%
Umsóknarfrestur er til og með 27.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Pétursdóttir
-
[email protected]
-
470-1428 / 618-1904
Jónína Guðrún Óskarsdóttir
-
[email protected]
-
470-3082 / 865-5737