Sumarafleysingar 2023 - Sjúkraliði/sjúkraliðanemar/almennur starfsmaður - Öldrunardeildin á Hvammstanga
Sumarafleysingar 2023 - Sjúkraliði/sjúkraliðanemar/almennur starfsmaður - Öldrunardeildin á Hvammstanga
Heilbrigðisstofnun Vesturlands (HVE) á Hvammstanga óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingar við umönnun á öldrunardeildina. Öldrunardeildin á Hvammstanga er ætluð fyrir einstaklinga í hjúkrunar- og hvíldarrýmum.
Helstu verkefni og ábyrgð
Viðkomandi vinnur eftir gildandi lögum og reglugerðum og starfsreglum stofnunar.
Starfið felur í sér fjölbreytt verkefni við umönnun skjólstæðinga á öldrunardeild.
Hæfniskröfur
- Jákvæðni og góð samskiptahæfni.
- Snyrtimennska og stundvísi.
- Góð íslenskukunnátta.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Með umsókn skal fylgja prófskirteini og ferilskrá. Staðfest afrit af starfsleyfi ef umsækjandi er sjúkraliði. Afrit af námi/námskeiðum sem nýtast í starfi. Sótt er um á www.hve.is eða www.starfatorg.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 08.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðrún Helga Marteinsdóttir, Deildarstjóri - [email protected] - 432-1310