Sumarafleysing - Aðhlynning á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
Sumarafleysing - Aðhlynning á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða starfsmenn í sumarafleysingu í aðhlynningu við hjúkrunardeildina í Víðihlíð í Grindavík. Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingi sem getur unnið sjálfstætt. Í Víðihlíð er 20 rúma langlegudeild fyrir aldraða ásamt því að allri heimahjúkrun er sinnt frá deildinni. Unnið er í vaktavinnu á dag-, kvöld- og helgarvöktum.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starf í aðhlynningu er bæði fjölbreytt og krefjandi. Starfsmenn starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn og markmiðum deildarinnar.
Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Hæfniskröfur
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Hlýtt og jákvætt viðmót
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Samvinnufús og tilbúin að vinna þau verkefni sem þarf
- Góð íslensku- og enskukunnátta
- Reynsla af áþekktum störfum er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknafrestur rennur út.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg R Þórðardóttir - [email protected] - 422-0700