Sumarafleysing - Eldhús/þvottahús á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
Sumarafleysing - Eldhús/þvottahús á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða starfsmann í eldhús/þvottahús í sumarafleysingarstarf í Víðihlíð. Um er að ræða 85% starf í dagvinnu og aðra hverja helgi.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi.
Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í matargerð fyrir sjúklinga, uppþvott í eldhúsi ásamt frágangi og þrifum á vinnusvæðum samkvæmt skipulagi. Einnig felst í starfinu ábyrgð á þvotti og frágangi fatnaðar skjólstæðinga hjúkrunardeildarinnar og öðru líni sem þvegið er á staðnum.
- Undirbúningur morgunverðar og miðdegiskaffi
- Móttöku á hádegismat og skömmtun mata á deildir
- Pöntun á vörum frá eldhúsi HSS í Reykjanesbæ
- Aðstoð við viðburði í sal Víðihlíðar þegar við á
Hæfniskröfur
- Reynsla og þekking á eldhússtarfi eru nauðsynleg
- Reynsla og þekking á þvottahússtarfi eru kostir
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Góð íslenskukunnátta áskilin
- Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Grindavíkur hafa gert.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi viðkomandi stéttarfélags. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 85%
Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg R Þórðardóttir - [email protected] - 422-0500