Sumarafleysing - starf í býtibúr á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
Sumarafleysing - starf í býtibúr á hjúkrunarheimilinu Víðihlíð í Grindavík
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (Víðihlíð) óskar eftir að ráða starfsmann í sumarafleysingu í bítibúr. Um er að ræða 40% starf í vaktavinnu. Unnið er önnur hver helgi, vinnutími 17:00-21:00.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Viðkomandi þarf að geta hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Almenn býtibúrs- og eldhússtörf ásamt öðrum tilfallandi störfum.
Hæfniskröfur
- Sjálfstæði og skipulögð vinnubrögð
- Jákvætt og lausnamiðað viðhorf
- Góð íslenskukunnátta áskilin
- Þjónustulund, metnaður og frumkvæði
- Starfsreynsla er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Verkalýðsfélag Grindavíkur hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 íbúar auk alþjóðaflugvallar.
Starfshlutfall er 40%
Umsóknarfrestur er til og með 13.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ingibjörg R Þórðardóttir - [email protected]