Sérfræðilæknir í kvenlækningateymi Landspítala
Sérfræðilæknir í kvenlækningateymi Landspítala
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í kvenlækningateymi kvenna- og barnaþjónustu Landspítala. Um er að ræða starf við almennar kvenlækningar og felst starfið í göngudeildarþjónustu, bráðaþjónustu, legudeildarþjónustu og aðgerðum og því mikilvægt að hafa góða reynslu á þessu sviði. Starfshlutfall er 100% og er starfið laust frá 1. apríl 2023 eða eftir samkomulagi.
Í kvenlækningateyminu er lögð áhersla á þverfaglega samvinnu tengt sjúkdómum í kvenlíffærum, auk þess er náin samvinna með fæðingarteymi Landspítala, þar sem samstarf er um læknisþjónustu utan dagvinnutíma með sérfræðilæknum fæðingarteymis.
Mikil uppbygging hefur átt sér stað í teymis- og gæðastarfi í kvenlækningarteymi á undanförnum árum og mikilvægt að umsækjandi sé tilbúinn til að taka þátt í áframhaldandi þróun sérgreinarinnar ásamt undirbúningi við flutning sérgreinarinnar í nýjan spítala.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Sérfræðistörf í samráði við viðkomandi yfirlækni
- Þátttaka í vöktum og bakvöktum fæðinga- og kvenlækninga
- Umsjón/ virk þátttaka í gæðastarfi deildarinnar
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu sem og önnur sérverkefni
- Umsjónarstörf eða eftirlitsverkefni í samráði við yfirlækni
Hæfniskröfur
- Íslenskt sérfræðileyfi í fæðinga- og kvensjúkdómalækningum
- Góð reynsla í almennum kvenlækningum, bráðaþjónustu, uppvinnslu og meðferð vegna góðkynja vandamála sem og annara sérhæfðra vandamála í kvenlíffærum mikilvæg
- Leiðtogahæfileikar
- Góð samstarfs- og samskiptahæfni og jákvætt viðmót
- Hæfni og geta til að starfa í teymi
- Reynsla af kennslu og vísindastörfum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
» Fyrri störf, menntun og hæfni
» Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
- Vottað afrit af námsgögnum og starfsleyfum.
- Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
- Staðfesting á reynslu í aðgerðartækni vegna almennra góðkynja vandamála í kvenlíffærum (aðgerðalisti staðfestur af yfirmanni).
- Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
- Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
- Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn.
Allar umsóknir þurfa að fara í gegnum ráðningrkerfi ríkisins. Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6000 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að vera háskólasjúkrahús í fremstu röð þar sem sjúklingurinn er ávallt í öndvegi. Lykiláherslur í stefnu spítalans eru öryggismenning, skilvirk og vönduð þjónusta, uppbygging mannauðs og stöðugar umbætur.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 15.02.2023
Nánari upplýsingar veitir
Kolbrún Pálsdóttir, Yfirlæknir - [email protected] - 543 1000