Sérfræðingur í þróun matsaðferða
Sérfræðingur í þróun matsaðferða
Vilt þú starfa á nútímalegum vinnustað sem leggur áherslu á framúrskarandi þjónustu, miðlun og stafræna þróun?
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun leitar að öflugu fólki til að taka þátt í uppbyggingu þjónustu HMS. Fjölbreytt og krefjandi verkefni eru framundan í takt við hlutverk og framtíðarsýn stofnunarinnar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Þróun matsaðferðar vegna fasteignamats
- Söfnun og greining gagna um fasteigna- og fjármagnsmarkað
- Þjónusta við fasteignaeigendur og sveitarfélög
- Önnur verkefni í samráði við teymisstjóra
Hæfniskröfur
- Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem á sviði verkfræði- eða fjármála
- Reynsla af greiningu og framsetningu gagna
- Reynsla af fasteigna- eða verðbréfamarkaði kostur
- Hæfni til að tjá sig á íslensku og ensku í ræðu og riti
- Lipurð í teymisvinnu og samskiptum
- Frumkvæði, skipulagshæfileikar og sjálfstæð vinnubrögð
- Góðir samskiptahæfileikar og lausnamiðuð hugsun
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsóknir skulu sendar inn í gegnum hagvang www.hagvangur.is.
Með umsókn skal fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hvetur öll áhugasöm til að sækja um starfið óháð kyni og uppruna.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.01.2023
Nánari upplýsingar veitir
Þorsteinn Arnalds, teymisstjóri fasteignamats - [email protected] - 440-6400