Sérfræðingur í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Sérfræðingur í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri
Laus er til umsóknar 100% staða sérfræðings í lyflækningum við Sjúkrahúsið á Akureyri. Staðan er laus nú þegar eða eftir samkomulagi. Æskilegt er að viðkomandi hafi búsetu á Akureyri.
Næsti yfirmaður er Guðjón Kristjánsson forstöðulæknir lyflækninga.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfinu fylgir hefðbundin vinna í lyflækningum á legudeild og göngudeild og ráðgjöf á öðrum einingum sjúkrahússins, ásamt bakvöktum. Einnig fylgir starfinu þátttaka í kennslu heilbrigðisstétta og þjálfun ungra lækna.
Möguleiki er á rannsóknarvinnu.
Hæfniskröfur
- Umsækjendur skulu hafa fullgild réttindi í almennum lyflækningum
- Undirsérgrein t.d. í smitsjúkdóma-, lungna-, innkirtla- eða nýrnalækningum er kostur
- Við ráðningu verður lögð áhersla á faglega þekkingu og reynslu ásamt hæfileikum á sviði samskipta, samvinnu og sjálfstæðra vinnubragða.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðjón Kristjánsson
-
[email protected]
-
463-0100
Ragnheiður Halldórsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100