Hoppa yfir valmynd
Önnur störfAusturlandHeilbrigðisstofnun Austurlands

Móttökuritari - Egilsstaðir - Heilsugæsla - Afleysing

Móttökuritari - Egilsstaðir - Heilsugæsla - Afleysing

Heilbrigðisstofnun Austurlands (HSA) óskar eftir að ráða móttökuritara í afleysingastöðu á Heilsugæsluna á Egilsstöðum. Starfshlutfall er 40% og veitist staðan frá 1. apríl eða samkvæmt samkomulagi og til 31. júlí 2024. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur meðal annars í sér almenna afgreiðslu, uppgjör, símsvörun og bókanir. Upplýsingagjöf og aðstoð við skjólstæðinga auk samvinnu og aðstoðar við aðrar deildir innan stofnunarinnar. 

Hæfniskröfur

Gerð er krafa um stúdentspróf, þekkingu og vald á að vinna upplýsingar á tölvutæku formi, gild almenn ökuréttindi, kunnáttu í ensku og einu Norðurlandamáli, tölulæsi og færni í upplýsinga- og fjarskiptatækni. Lögð er áhersla á metnað í starfi, skipulögð vinnubrögð, hlýtt viðmót, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta skilyrði.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi hafa gert.

Umsóknum um auglýst störf skal skilað rafrænt til HSA . Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. 
HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði en alls eru starfsstöðvarnar þrettán talsins. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Bakkafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. HSA vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 40%

Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023

Nánari upplýsingar veitir

Magnfríður Ólöf Pétursdóttir - [email protected] - 470-3029

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum