Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðHeilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Almennur starfsmaður sumarafleysing - Heimahjúkrun HH

Almennur starfsmaður sumarafleysing - Heimahjúkrun HH

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins óskar eftir almennum starfsmanni í sumarafleysingar frá og með 15. maí nk. eða eftir nánara samkomulagi. Starfshlutfall er 80-100%. Um er að ræða starf við heimahjúkrun á dag-, kvöld- og helgarvöktum. 

Heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins sinnir heimahjúkrun í Kópavogi, Garðabæ, Hafnarfirði og Mosfellsumdæmi og er með aðsetur í nýju og glæsilegu húsnæði að Miðhrauni 4 í Garðabæ. Hlutverk heimahjúkrunar er að veita einstaklingsmiðaða hjúkrun sem er sérsniðin að þörfum hvers og eins þar sem forvarnir, heilsuvernd, heilsuefling, fagleg þekking og samstarf eru höfð að leiðarljósi. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið er mjög fjölbreytt og gefandi. Starfsmaður aðstoðar við umönnun ásamt því að veita skjólstæðingum félagslegan stuðning. Hann vinnur náið í teymi ásamt hjúkrunarfræðingi, sjúkraliðum og félagsliðum og er teymið leitt af teymisstjóra. Starfsmaður mun hafa bifreið til afnota á vinnutíma.

Hæfniskröfur

- Menntun sem nýtist í starfi 

- Reynsla af ummönnun æskileg 

- Sjálfstæði í starfi 

- Mikil samskiptahæfni og rík þjónustulund 

- Gilt ökuleyfi 

- Hreint sakavottorð 

- Góð íslenskukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Hildur Sigurjónsdóttir, Svæðisstjóri - [email protected] - 513-6900

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum