Ljósmæður sumarafleysingar - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Ljósmæður sumarafleysingar - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Heilsugæsla Höfuðborgarsvæðisins auglýsir eftir ljósmæðrum í sumarafleysingar. Um er að ræða störf á tímabilinu júní-ágúst. Starfshlutfall er frá 20-100%.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst aðallega í mæðravernd. Mæðravernd er í höndum ljósmæðra og heimilislækna á heilsugæslustöðvum og samráð er haft við fæðingarlækna ef þörf er á. Markmið með mæðravernd heilsugæslunnar er m.a. að stuðla að heilbrigði móður og barns, veita stuðning og ráðgjöf, greina áhættuþætti og veita fræðslu um meðgöngu og fæðingu.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi skilyrði
- Starfsleyfi sem ljósmóðir
- Reynsla af vinnu á fæðingardeild og/eða meðgöngudeild kostur
- Reynsla sem ljósmóðir á heilsugæslustöð kostur
- Reynsla við að nota rafræna mæðraskrá
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Sjálfstæði í starfi
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi. Jafnframt skal leggja fram staðfestar upplýsingar um menntun og staðfest afrit af opinberu starfsleyfi. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdastjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir hreinsu sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Ósk Erlendsdóttir
-
[email protected]
-
513-5000
Anna Sigríður Vernharðsdóttir
-
[email protected]
-
513-5235