Hjúkrunarfræðingar/Nurses
Hjúkrunarfræðingar/Nurses
Leitum að hjúkrunarfræðingum á nær allar deildir sjúkrahússins. Starfshlutfall er samkomulag, um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vötkum og upphafstími ráðningar er samkomulagsatriði.
Þær deildir sem koma til greina eru:
- Barnadeild
- Fæðingadeild
- Gjörgæsludeild
- Kristnesspítali
- Lyflækningadeild
- Skurðlækningadeild
Um er að ræða vaktavinnu á þrískiptum vöktum.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
- Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
- Unnið er á þrískiptum vöktum í fjölbreyttu og krefjandi starfsumhverfi.
Hæfniskröfur
- Umsækjandi skal hafa gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
- Lögð er áhersla á frumkvæði, sjálfstæð vinnubrögð og hæfileika í samskiptum og samvinnu.
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsóknum skal skilað rafrænt á vef sjúkrahússins www.sak.is. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferil ásamt prófskírteinum og starfsleyfi. Við ráðningu í störf er tekið mið af jafnréttisstefnu sjúkrahússins, sem er reyklaus vinnustaður. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.
Sjúkrahúsið veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi. Áhersla er á virka þátttöku starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum stöðum sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Gildi Sjúkrahússins á Akureyri eru ÖRYGGI SAMVINNA FRAMSÆKNI
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út, sbr. 2. gr. reglna nr. 464/1996, um auglýsingar á lausum störfum.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 31.03.2023
Nánari upplýsingar veitir
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
Kristjana Kristjánsdóttir
-
[email protected]