Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Sumarstörf - Heilsugæsla höfuðborgarsvæðisins
Ertu að leita að sumarstarfi með frábæru samstarfsólki?
Við erum að leita að öflugu og jákvæðu fólki með ríka þjónustulund í sumarafleysingastörf á ýmsar starfsstöðvar. Um er að ræða störf á Heilsugæslunni Efstaleiti, Firði, Hlíðum, Hvammi, Miðbæ,, Mjódd ásamt Seltjarnarnesi og Vesturbæ. Við erum líka að leita að sumarfólki í Heimahjúkrun heilsugæslunnar og á skrifstofuna okkar í Mjódd. Það eru fjölmörg spennandi störf í boði með ráðningartíma frá 6 vikum upp í 3 mánuði.
Passar þú í hópinn?
Helstu verkefni og ábyrgð
- Símsvörun, bókanir og móttaka skjólstæðinga
- Uppgjör í lok dags
- Móttaka tímapantana í afgreiðslu
- Almenn upplýsingagjöf um starfsemi stöðvarinnar
- Flokkun á pósti ásamt skönnun og frágangi gagna
- Önnur verkefni falin af yfirmanni
Hæfniskröfur
- Heilbrigðisritaramenntun og/eða nám sem nýtist í starfi
- Reynsla af skrifstofustjórastörfum æskileg
- Jákvæðini og rik þjónustulund
- Hæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
- Góð almenn tölvukunnátta
- Reynsla af Sögukerfi er kostur
- Lágmarksaldur er 18 ár
- Góð íslensku- og enskukunnátta
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja náms- og starfsferilsskrá ásamt kynningarbréfi þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði. Ef óskað er eftir að starfa á ákveðinni heilsugæslustöð þá vinsamlegast takið það fram.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 28.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Sigurborg Jónsdóttir
-
[email protected]
-
513-6822
Asmir Þór Þórsson
-
[email protected]
-
513-6822