Nýdoktor við Lífvísindasetur
Nýdoktor við Lífvísindasetur
Staða nýdoktors við Lífvísindasetur Háskóla Íslands í rannsóknaverkefni á sviði frumulíffræði og sameindalíffræði er laus til umsóknar. Verkefnið er vistað hjá Lífvísindasetri við Verkfræði- og náttúruvísindasvið Háskóla Íslands. Verkefnið er um stjórnun náttúrulega ónæmiskerfisins og tengist örvun á fyrstu vörnum hýsils til að hindra sýkingar. Í verkefninu verða nýmynduð lífræn efni (lyfjavísar) af skilgreindum efnaflokki notuð til að örva boðleiðir sem leiða til aukinnar framleiðslu á varnarpeptíðum og styrkja þekjuvarnir. Þessi örvun á fyrstu varnarlínunni vinnur á móti sýklum á þekju yfirborði og örvar átfrumur til hreinsunar og getur komið í veg fyrir sýkingar. Fjármögnun er frá Horizon Europe verkefninu IN-ARMOR sem samanstendur af samstarfsneti vísindamanna sem eru sérhæfðir í lífrænni efnafræði, frumuliffræði, sýkingum, bólgusjúkdómum, lyfjaþróun og lifandi módelkerfum.
Áætluð byrjun fyrir verkefnið og stöðuna er maí 2023. Verkefnið er styrkt til fjögurra ára.
Helstu verkefni og ábyrgð
Í upphafi verða skilgreind efni sem örva tjáningu varnarpeptíða. Varnarpeptíðin eru mynduð af þekjufrumum og átfrumum sem fyrsta vörn og stýra samsetningu örveruflórunnar. Örvun á varnarpeptíðum vinnur á móti neikvæðum sýklaáhrifum á þekjuvarnir og kemur í veg fyrir sýkingar. Fyrir örvunarefnin verða boðleiðir, markprótein, umritunarþættir og breytt genatjáning skilgreind. Evrópu samstarfsnetið í verkefninu mun síðan skilgreina virkni í viðurkenndum dýramódelum og vinna að hámörkun áhrifa. Á rannsóknastofunni við Lífvísindasetur mun tæknimaður vera til aðstoðar í verkefninu. Fræðilega er verkefnið á sviði lífefnafræði, frumulíffræði og ónæmisfræði með rætur í viðmikilum samstrafsrannsóknum prófessora við Háskóla Íslands (HÍ) og Karólinska stofnunina (KI) í Stokkhólmi, þeirra Gudmundar H. Gudmundsson (HÍ) og Birgitta Agerberth ásamt Peter Bergman (bæði við KI). Einnig er samstarf við nýsköpunarfyrirtækið Akthelia í Reykjavík. Eftirfarandi greinar gefa góða mynd af rannsóknabakgrunni verkefnisins:
1) Myszor I.T. et al., Novel aroylated phenylenediamine compounds enhance antimicrobial defense and maintain airway epithelial barrier integrity. Sci Rep. 2019 May 8;9(1):7114. doi: 10.1038/s41598-019-43350-z.
2) Bergman P, et al., Host Directed Therapy Against Infection by Boosting Innate Immunity. Front Immunol. 2020 Jun 12;11:1209. doi: 10.3389/fimmu.2020.01209.
3) Islam D, et al., Downregulation of bactericidal peptides in enteric infections: a novel immune escape mechanism with bacterial DNA as a potential regulator. Nat Med. 2001 Feb;7(2):180-5. doi: 10.1038/84627.
4) Sarker P. et al., Phenylbutyrate counteracts Shigella mediated downregulation of cathelicidin in rabbit lung and intestinal epithelia: a potential therapeutic strategy. PLoS One. 2011;6(6): e20637. doi: 10.1371/journal.pone.0020637)
Hæfniskröfur
- Doktorgráða í líffræði, lífefnafræði eða sambærilegum sviðum
- Reynsla af frumuræktunum og rannsóknavinnu á sviði frumulíffræði, sameindalíffræði eða lífefnafræði
- Áhugi á frumulíffræði og náttúrulegum vörnum
- Þekking á lífupplýsingafræði og massagreiningum er kostur
- Færni í ensku í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn skal fela í sér: i) ferilskrá (með lista yfir útgefnar vísindagreinar), ii) staðfest afrit af námsárangri í námskeiðum á háskólastigi (BSc, MSc), iii) Titill og útdráttur doktorsritgerðar, iv) hálf blaðsíðu um rannsóknaráhuga umsækjanda og styrkleika, v) hálfa blaðsíðu (hámark) um hvað umsækjandi telur sig hafa fram að færa við mótun og vinnslu verkefnisins og vi) nöfn þriggja umsagnaraðila og upplýsingar um hvernig má hafa samband við þá (nafn, staða, stofnun, netfang og símanúmer).
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningu í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans, sjá hér: http://www.hi.is/haskolinn/jafnrettisaaetlun#markmid2.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands, sjá hér: https://www.hi.is/haskolinn/malstefna_haskola_islands.
Lífvísindasetur Háskóla Íslands (http://lifvisindi.hi.is/) er meginvettvangur rannsókna í frumulíffræði og sameindalíffræði meðal annars tengt læknisfræði. Lífvísindasetur Háskólans býður upp á alþjóðlegt rannsóknarumhverfi þar sem erlendum starfsmönnum og nemendum fjölgar ár hvert. Rannsóknaumhverfið er alþjóðlegt með fjölda sérfræðinga í sameindalíffræði, nýdoktora, doktorsnema og meistaranema.
Á Verkfræði- og náttúruvísindasviði starfa 360 manns við rannsóknir og kennslu á sviði verkfræði og náttúruvísinda. Starfsumhverfið er alþjóðlegt enda eykst sífellt hlutfall erlendra starfsmanna og nemenda við sviðið, en fjórðungur bæði starfsmanna og framhaldsnema eru erlendir. Nemendur Verkfræði- og náttúruvísindasviðs eru um 2300 talsins í sex deildum. Þar af eru 350 í meistaranámi og 150 í doktorsnámi. Rannsóknarstofnanir sviðsins eru Jarðvísindastofnun og Eðlisvísindastofnun sem tilheyra báðar Raunvísindastofnun, Líf- og umhverfisvísindastofnun, Verkfræðistofnun og Stofnun Sæmundar fróða sem er þverfræðileg stofnun og heyrir undir öll fræðasvið háskólans. Margir vísindamenn sviðsins tengjast Lífvísindasetri.
Háskóli Íslands er stærsta kennslu-, rannsókna- og vísindastofnun Íslands.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðmundur H Guðmundsson, Prófessor - [email protected]