Hoppa yfir valmynd
Kennsla og rannsóknirNorðurlandHáskólinn á Akureyri

Aðjúnkt í öldrunar- og heimahjúkrun

Aðjúnkt í öldrunar- og heimahjúkrun

Háskólinn á Akureyri auglýsir lausa til umsóknar 49% stöðu aðjúnkts í hjúkrunarfræði við námsbraut fagnáms sjúkraliða með áherslu á kennslu í öldrunar- og heimahjúkrun. Leitað er að hjúkrunarfræðingi með sérþekkingu á sviði öldrunar- og heimahjúkrunar. 

Helstu verkefni og ábyrgð

Starfið felur í sér að hafa umsjón með námskeiðum í öldrunar- og heimahjúkrun, fræðilega og klíníska kennslu og stjórnun við námsbraut fagnáms sjúkraliða. Aðjúnktsstaðan er án rannsóknarskyldu. Næsti yfirmaður er deildarforseti. Starfsvettvangur er Háskólinn á Akureyri. Staðan er veitt frá og með 1. ágúst 2023. Ráðningartími er tímabundinn til tveggja ára.  

Háskólinn á Akureyri er eini háskólinn á Íslandi sem býður upp á fagnám til diplómaprófs fyrir starfandi sjúkraliða. Námið er 60 ECTS eininga nám, tekið á tveimur árum og gert er ráð fyrir að nemendur starfi við sitt kjörsvið á námstímanum. Starfinu fylgir möguleiki á þátttöku í þróunarstarfi og uppbyggingu fagmenntunar heilbrigðisstétta til framtíðar auk kennslu í öldrunar- og heimahjúkrun, samfélagsgeðhjúkrun, klínískri kennslu á vettvangi og í hermisetri. 

Hæfniskröfur

  • Meistarapróf í hjúkrunarfræði eða heilbrigðisvísindum
  • Sérmenntun á sviði hjúkrunar með áherslu á öldrunar- og heimahjúkrun og a.m.k. 2 ára starfsreynsla á því sviði 
  • Að minnsta kosti 2 ára klínísk reynsla á heilbrigðisstofnun og virkni í klínísku starfi
  • Starf við öldrunar- og heimahjúkrun meðfram aðjúnktsstöðunni er krafa
  • Reynsla af þátttöku í þverfaglegri teymisvinnu er kostur. 
  • Sérfræðileyfi á tengdu fræðasviði eða virk umsókn um sérfræðileyfi er kostur
  • Sjúkraliðanám og viðbótarnám sjúkraliða er kostur
  • Reynsla af háskólakennslu og fræðilegri og klínískri leiðbeiningu á háskólastigi er kostur
  • Góð samstarfshæfni, lipurð í mannlegum samskiptum ásamt góðri færni í að miðla þekkingu
  • Gott vald á íslensku og ensku, jafnt töluðu sem rituðu máli

 

Umsókn skal fylgja: 

  • Greinargott yfirlit yfir náms- og starfsferil
  • Staðfest afrit af prófskírteinum og sérfræðileyfi
  • Kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur fyrir hæfni umsækjanda í starfið
  • Tilnefna skal a.m.k. tvo umsagnaraðila og er æskilegt að einn þeirra sé næsti yfirmaður í núverandi eða fyrra starfi umsækjanda

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara á Akureyri hafa gert.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum námsbrautar fagnáms sjúkraliða við Háskólann á Akureyri. 
Meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðning í starfið er í samræmi við ákvæði laga um háskóla nr. 63/2006, laga um opinbera háskóla nr. 85/2008 með síðari breytingum, og reglur fyrir Háskólann á Akureyri. nr. 387/2009. Ófullnægjandi umsóknir eru ekki teknar til greina. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu í starfið hefur verið tekin. Háskólinn á Akureyri áskilur sér rétt til að hafna öllum umsóknum. Umsókn getur gilt í sex mánuði eftir að umsóknarfresti lýkur. 

Starfshlutfall er 49%

Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Þorbjörg Jónsdóttir, Deildarforseti - [email protected] - 4608477
Hafdís Skúladóttir, Námsbrautarstjóri - [email protected] - 4608456

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum