Sumarstarf bókhald HH
Sumarstarf bókhald HH
Hefur þú brennandi áhuga á tölum og færslu bókhalds?
Við leitum að jákvæðum og töluglöggum einstaklingi í sumarafleysingu í bókhaldsdeild Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins (HH). Deildin heyrir undir sviði fjármála og rekstrar sem staðsett er í Álfabakka 16. Frábær vettvangur fyrir ungt fólk sem er í námi og leitar að spennandi tækifærum í bókhaldi. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 15. maí n.k. eða eftir nánari samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Færsla bókhalds og öll almenn bókhaldsstörf
- Skráning almennra reikninga
- Móttaka og yfirferð uppgjöra
- Frágangur gagna
- Önnur tilfallandi verkefni
Hæfniskröfur
- Stúdentspróf eða sambærileg menntun
- Nákvæmni, talnagleggni og sjálfstæð vinnubrögð
- Jákvæðni og rík þjónustulund
- Góð almenn tölvukunnátta
- Starfsreynsla við skráningu bókhalds kostur
- Þekking og færni í Oracle fjárhagskerfi ríkisins kostur
- Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð
- Íslenskukunnátta skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sameyki hafa gert.
Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.
Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.
Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Guðfinna Helgadóttir - [email protected] - 513-5000