Geislafræðingur óskast í sumarafleysingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi
Geislafræðingur óskast í sumarafleysingu á Heilbrigðisstofnun Suðurlands, Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands leitar að geislafræðingi til starfa í sumarafleysingu við stofnunina.
Um er að ræða afleysingu fyrir myndgreininguna á Selfossi.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfið felst í almennum röntgenrannsóknum og tölvusneiðmyndatökum.
Hæfniskröfur
Íslenskt starfsleyfi sem geislafræðingur.
Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum.
Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag geislafræðinga hafa gert.
Um er að ræða vaktavinnu.
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Aðalheiður Jónsdóttir - [email protected]