Heilbrigðisgagnafræðingur óskast í sumarafleysingu á HSU Selfossi
Heilbrigðisgagnafræðingur óskast í sumarafleysingu á HSU Selfossi
Heilbrigðisstofnun Suðurlands á Selfossi óskar eftir að ráða til starfa heilbrigðisgagnafræðing í 100% sumarafleysingu í sumar
Helstu verkefni og ábyrgð
- Meðhöndlun, skráning, úrvinnsla og vistun heilbrigðisgagna í rafræna sjúkraskrá
- Stoðþjónusta við stjórnendur ásamt þverfaglegri teymisvinnu
Hæfniskröfur
- Starfsleyfi Landlæknis
- Góð tölvukunnátta er skilyrði
- Þekking á Sögukerfinu er æskileg
- Gott vald á íslensku, góð enskukunnátta kostur
- Faglegur metnaður, frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
- Til greina kemur að ráða nema í heilbrigðisgagnafræði eða nemanda í öðru námi í heilbrigðisfræðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag opinberra starfsmanna á Suðurlandi hafa gert.
- Um er að ræða dagvinnu alla virka daga
- Umsókn þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi, fyrri störf
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Aðalheiður Ásgeirsdóttir - [email protected]