Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar óskast til sumarafleysinga á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi
Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar óskast til sumarafleysinga á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi
- Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa í sumarafleysingu á bráðamóttöku Heilbrigðisstofnunar Suðurlands á Selfossi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Um er að ræða hjúkrun á bráðamóttöku HSU þar sem öll bráðatilvik koma inn.
- Sjúklingar tilheyra öllum aldurshópum og koma hvenær sem er sólarhringsins, sem gerir bráðamóttökuna að spennandi vinnustað með mikið af lærdómstækifærum.
- Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
- Mikið er lagt upp úr góðri samvinnu allra starfshópa þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi.
Hæfniskröfur
- Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
- Starfsleyfi landlæknis
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Frumkvæði, áreiðanleiki og jákvætt viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
- Um er að ræða vaktavinnu
- Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Starfshlutfall er 40-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Birna Gestsdóttir - [email protected]