Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar óskast í sumarstöf á hjúkrunarheimili HSU á Selfossi
Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar óskast í sumarstöf á hjúkrunarheimili HSU á Selfossi
- Sjúkraliðar og sjúkraliðanemar óskast til starfa í sumar á hjúkrunarheimili HSU Selfossi. Hjúkrunarheimilin eru Ljósheimar, Fossheimar og Móberg
- Starfsemi heimilisins byggir á hugmyndafræði Eden stefnunnar og lagt verður upp úr einstaklingsbundinni endurhæfingu íbúa í leik og starfi
Helstu verkefni og ábyrgð
- Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki
- Mikið er lagt upp úr góðu þverfaglegu samstarfi þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi
- Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og aðra hvora helgi
- Skipulag vakta er í samráði við deildarstjóra
- Starfshlutfall er í samráði við deildarstjóra
Hæfniskröfur
- Sjúkraliðanám frá viðurkenndri menntastofnun
- Starfsleyfi landlæknis og/eða vottorð frá skóla um námsframvindu
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, áreiðanleiki og síðast en ekki síst jákvætt viðhorf
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sjúkraliðafélag Íslands hafa gert.
Starfið er laust nú þegar
Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Starfshlutfall er 20-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Unnur Eyjólfsdóttir - [email protected]