Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaSuðurlandHeilbrigðisstofnun Suðurlands

Starfsfólk í umönnun óskast í sumar á hjúkrunarheimili HSU á Selfossi

Starfsfólk í umönnun óskast í sumar á hjúkrunarheimili HSU á Selfossi

  • Starfsfólk í umönnun óskast til starfa í sumar á hjúkrunarheimili HSU á Selfossi. Hjúkrunarheimilin eru Fossheimar, Ljósheimar og Móberg. 
  • Starfsemi heimilisins byggir á hugmyndafræði Eden stefnunnar og lagt verður upp úr einstaklingsbundinni endurhæfingu íbúa í leik og starfi

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Um er að ræða fjölbreytt starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki
  • Mikið er lagt upp úr góðu þverfaglegu samstarfi þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldum þeirra er höfð að leiðarljósi
  • Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og aðra hvora helgi. Skipulag vakta er í samráði við deildarstjóra
  • Starfshlutfall er samkomulagsatriði við deildarstjóra

Hæfniskröfur

  • Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum, frumkvæði, áreiðanleiki og síðast en ekki síst jákvætt viðhorf

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Báran, stéttarfélag hafa gert.

Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um fyrri störf og meðmæli

Störfin eru laus nú þegar eða eftir nánara samkomulagi

Starfshlutfall er 20-100%

Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Unnur Eyjólfsdóttir - [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum