Sjúkraflutningamaður óskast í sumarstarf við sjúkraflutninga og umsjón fasteigna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum
Sjúkraflutningamaður óskast í sumarstarf við sjúkraflutninga og umsjón fasteigna hjá Heilbrigðisstofnun Suðurlands í Vestmannaeyjum
Sjúkraflutningamenn óskast til starfa í sumar í sameinuð störf við sjúkraflutninga og umsjón fasteigna í Vestmannaeyjum. Um er að ræða spennandi starf hjá HSU.
HSU starfrækir 9 heilsugæslustöðvar á 10 starfsstöðvum, í Hveragerði, Þorlákshöfn, Selfossi, Laugarási, Rangárþingi (Hellu og Hvolsvelli), Vestamannaeyjum, Vík, Kirkjubæjarklaustri og Höfn í Hornafirði. Einnig eru starfrækt tvö sjúkrahús, eitt á Selfossi og annað í Vestmannaeyjum. Á Höfn eru einnig bráðarými. Að auki eru rekin hjúkrunarheimili á Selfossi og í Vestmannaeyjum. Þá annast stofnunin alla sjúkraflutninga á starfssvæðinu.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Starfið felur í sér sjúkraflutninga, tilfallandi daglegt viðhald, almenna húsvörslu, sendiferðir og önnur verkefni skv. starfslýsingu á starfsstöðvum HSU.
Hæfniskröfur
- Gerð er krafa um starfsleyfi sem sjúkraflutningamaður
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Góð hæfni í mannlegum samskiptum
- Iðnmenntun á sviði byggingaiðnaðar, kostur en ekki skilyrði
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna fastir hafa gert.
- Um er að ræða dagvinnu auk bakvakta.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Björgvin R Snorrason
-
[email protected]
Hermann Marinó Maggýjarson
-
[email protected]