Hjúkrunarfræðingur óskast til sumarafleysinga í fjölbreytt og spennandi starf á Heilsugæslu HSU í Vík
Hjúkrunarfræðingur óskast til sumarafleysinga í fjölbreytt og spennandi starf á Heilsugæslu HSU í Vík
Vilt þú starfa á framúrskarandi vinnustað í sumar ?
Hjúkrunarfræðingur óskast til sumarafleysinga á heilsugæslu HSU í Vík á Mýrdal
Helstu verkefni og ábyrgð
- Um er að ræða fjölbreytt, krefjandi starf sem krefst mikils sjálfstæðis og haldgóðrar þekkingar
- Starfið felst í almennri hjúkrun og móttöku á heilsugæslu auk heimahjúkrunar
- Auk lögbundinna verkefna á heilsugæslu sinnir heilsugæslan bráða- og slysamóttöku á dagvinnutíma
- Mikið er lagt upp úr góðri þverfaglegri samvinnu þar sem fagmennska, umhyggja og virðing fyrir skjólstæðingum og fjölskyldu þeirra er höfð að leiðarljósi
Hæfniskröfur
- Hjúkrunarnám frá viðurkenndri menntastofnun
- Starfsleyfi landlæknis
- Fjölbreytt starfsreynsla
- Starfsleyfi sem sjúkraflutningamaður, kostur
- Frumkvæði, áreiðanleiki, jákvæðni og árangursmiðað viðhorf
- Framúrskarandi hæfni í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Starfshlutfall er samkomulag.
Starfshlutfall er 50-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Helga Þorbergsdóttir - [email protected] - 4322800