Hoppa yfir valmynd
SérfræðistörfHöfuðborgarsvæðiðHeilsugæsla höfuðborgarsvæðisins

Hefur þú brennandi áhuga á sálfræði?

Hefur þú brennandi áhuga á sálfræði?

Laust er til umsóknar afleysingar starf til eins árs. Starfshlutfall er 100% starf sálfræðings fullorðinna við Heilsugæsluna Fjörð. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf 1. júlí nk. eða eftir nánara samkomulagi.  

Um er að ræða ábyrgðarmikið og krefjandi starf og spennandi vettvang fyrir sálfræðing sem hefur áhuga á nýsköpun og framþróun í heilsugæslu. Sálfræðingur starfar náið með öðrum sálfræðingum í stöð, læknum, hjúkrunarfræðingum og öðru fagfólki í skemmtilegu starfsumhverfi sem er í stöðugri þróun. Lögð er áhersla á að sálfræðingar HH fái handleiðslu og símenntun í faginu.

Heilsugæslan á að vera fyrsti viðkomustaður í heilbrigðisþjónustu þar sem ólíkum þörfum notenda er mætt í nærumhverfi og þeim leiðbeint yfir í önnur kerfi heilbrigðisþjónustunnar eftir því sem þörf er á. Mikil þróunarvinna er í gangi og stöðugt er unnið að því að bæta þjónustu við skjólstæðinga sem hefur fjölgað mikið undanfarin ár.

Nánari upplýsingar um starfsemina má finna á vef Heilsugæslunnar (www.heilsugaeslan.is) 

Helstu verkefni og ábyrgð

- Sálfræðiþjónusta fyrir einstaklinga 18 ára og eldri  
- Greining, mat og meðferð á geðrænum vanda, gagnreynd sálfræðimeðferð og ráðgjöf  
- Einstaklings- og hópmeðferð
- Námskeiðahald, ráðgjöf og fræðsla
- Handleiðsla og þjálfun nema í klínískri sálfræði 
- Þátttaka í þróun og uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Samstarf við aðrar heilbrigðisstofnanir s.s. Landspítala og félagsþjónustu
- Önnur tilfallandi verkefni 

Hæfniskröfur

- Leyfi frá landlækni til að starfa sem sálfræðingur er skilyrði
- 3 ára starfsreynsla af klínísku starfi
- Reynsla af greiningu og meðferð fullorðinna með geðrænan vanda
- Þekking og reynsla af gagnreyndum aðferðum, s.s. hugrænni atferlismeðferð  
- Faglegur metnaður og áhugi á uppbyggingu sálfræðiþjónustu í heilsugæslu
- Sjálfstæði, frumkvæði og lausnamiðuð nálgun í starfi
- Reynsla og áhugi á þverfaglegri teymisvinnu
- Góð samskiptahæfni, lipurð og sveigjanleiki í samskiptum
- Góð íslenskukunnátta skilyrði
- Góð almenn tölvukunnátta

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Sálfræðingafélag Íslands hafa gert.

Umsókn skal fylgja ítarleg náms- og starfsferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar. Leggja skal fram staðfestar upplýsingar um menntun, fyrri störf og reynslu.  Gögn sem ekki er hægt að senda rafrænt skulu berast Svövu Þorkelsdóttur, framkvæmdarstjóra mannauðs og nýliðunar Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins, Álfabakka 16, 109 Reykjavík. HH áskilur sér rétt til þess að óska eftir sakavottorði.

Mat á hæfni umsækjenda byggist á innsendum gögnum og viðtölum við umsækjendur. Tekið er mið af jafnréttis- og mannréttindastefnu Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins við ráðningu í starfið. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu liggur fyrir. Umsókn getur gilt í 6 mánuði

Starfshlutfall er -100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Guðrún Gunnarsdóttir - [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum