Hjúkrunarfræðingur á barnadeild
Hjúkrunarfræðingur á barnadeild
Laus er til umsóknar staða hjúkrunarfræðings við barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri, starfshlutfall er samkomulag. Einnig kemur til greina að ráða 4. árs hjúkrunarnema. Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á þrískiptum vöktum og eru stöðurnar lausar nú þegar eða eftir samkomulagi.
Barnadeild Sjúkrahússins á Akureyri er eina barnadeild landsins utan höfuðborgarsvæðisins og skiptist í legudeild, dagdeild, göngudeild og vökustofu. Barnadeild sinnir börnum og unglingum frá fæðingu til 18 ára aldurs.
Hefur þú áhuga á barnahjúkrun þá er þetta tækffæri fyrir þig
Frábært tækifæri á góðum vinnustð þar sem starfsumhverfið er fjölbreytt, spennandi og lærdómsríkt.
Næsti yfirmaður er Aðalheiður Guðmundsdóttir forstöðuhjúkrunarfræðingur á barnadeild.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á öllum almennum verkefnum hjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum
- Unnið samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar
- Fjölbreytt og gefandi verkefni í góðu starfsumhverfi
- Góð handleiðsla frá reyndum hjúkrunarfræðingum
Hæfniskröfur
- Fullgilt hjúkrunarpróf og gilt íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
- Hæfileika í samskiptum og samvinnu
- Þekking og reynsla af barnahjúkrun er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 03.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Aðalheiður Guðmundsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100