Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar á sjúkrasvið
Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar á sjúkrasvið
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarfræðinema í afleysingarstörf á sjúkradeild. Um er að ræða vaktavinnu. Möguleiki er á framlengingu.
Leitað er eftir áhugasömum og metnaðarfullum einstaklingum sem geta unnið sjálfstætt. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og hér ríkir góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar og nemar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar.
Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi eða að hafa lokið þriggja ára námi í hjúkrunarfræði
- Faglegur metnaður og vandvirkni
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Hlýtt og jákvætt viðmót
- Starfsreynsla er kostur
- Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 30-100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Bryndís Sævarsdóttir
-
[email protected]
-
4220500
Ása Hrund Sigurjónsdóttir
-
[email protected]
-
4220500