Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Ljósmóðir á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingi til að slást í okkar frábæra hóp.
Við óskum að ráða ljósmóður á Ljósmæðravaktina, um er ræða framtíðarstarf og unnið er í vaktavinnu. Starfshlutfall er 50-60% eftir samkomulagi. Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf en Ljósmæðravaktin er D1 fæðingastaður þar sem heilbrigðar konur geta fætt og leggur áherslu á samfellda ljósmæðraþjónustu. Ljósmóðir sinnir meðgönguvernd, sængurlegu, göngudeildarþjónustu, krabbameinsleit og fæðingahjálp. Þær starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Hæfniskröfur
- Íslenskt ljósmæðraleyfi
- Faglegur metnaður og vandvirkni
- Jákvætt og hlýtt viðmót
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti
- Starfsreynsla er æskileg
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Ljósmæðrafélag Íslands hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússsvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Íbúafjöldi upptökusvæðisins, sem er Reykjanesið, er um 30.000 íbúar auk alþjóðaflugvallar.
Starfshlutfall er 50-60%
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Jónína Sigríður Birgisdóttir - [email protected] - 4220500