Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu - Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Hjúkrunarfræðingar á heilsugæslu - Heilbrigðisstofnun Suðurnesja
Viltu slást í hópinn og taka þátt í spennandi uppbyggingu?
Framundan er mikil uppbygging á HSS og leitum við að metnaðarfullum og jákvæðum einstaklingum til að slást í okkar frábæra hóp og byggja upp öfluga teymisvinnu sem eykur þjónustu við skjólstæðinga heilsugæslunar.
Um er að ræða 80-100% starf í dagvinnu. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst eða eftir samkomulagi.
Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.
Helstu verkefni og ábyrgð
Starfsemi á heilsugæslunni í Reykjanesbæ er fjölbreytt. Læknamóttaka, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttaka. Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki.
Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu.
Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar. Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.
Hæfniskröfur
- Íslenskt hjúkrunarleyfi
- Faglegur metnaður
- Framúrskarandi samskiptahæfni
- Sjálfstæði í vinnubrögðum
- Jákvætt og hlýtt viðmót
- Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.
- Starfsreynsla er kostur
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.
Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað um leið og ráðið hefur verið í starfið. Umsókn gildir í 6 mánuði.
Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Andrea Klara Hauksdóttir - [email protected] - 4220500