Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaSuðurnesHeilbrigðisstofnun Suðurnesja

Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar á heilsugæslu

Sumarafleysing - Hjúkrunarfræðingar/hjúkrunarfræðinemar á heilsugæslu

Heilbrigðisstofnun Suðurnesja óskar eftir að ráða hjúkrunarfræðinga og/eða hjúkrunarfræðinema í afleysingarstörf á heilsugæslustöð. Um er að ræða störf í dagvinnu.  

Á stofnuninni er góð samvinna milli deilda, boðleiðir eru stuttar og góður starfsandi. Við tökum vel á móti nýju fólki og veitum góða og einstaklingshæfða aðlögun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Um er að ræða fjölbreytt og krefjandi starf með skemmtilegu og metnaðarfullu starfsfólki. Starfsemi á heilsugæslunni í Reykjanesbæ er fjölbreytt, læknamóttaka, hjúkrunarmóttaka, skólahjúkrun, ung- og smábarnavernd og heilsueflandi móttaka. Unnið er á grundvelli þverfaglegs samstarfs sérfræðinga og áhersla lögð á heildarsýn og samþætta þjónustu. Hjúkrunarfræðingar starfa samkvæmt lögum og reglugerðum um heilbrigðisstarfsmenn, siðareglum og markmiðum hjúkrunar og deildarinnar. 

Leiðarljós HSS í þjónustu og starfi er umhyggja, fagmennska og virðing.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi eða að hafa lokið þriggja ára námi í hjúkrunarfræði
  • Faglegur metnaður
  • Framúrskarandi samskiptahæfni
  • Sjálfstæði í vinnubrögðum
  • Hlýtt og jákvætt viðmót
  • Starfsreynsla er kostur
  • Gott vald á íslensku bæði í ræðu og riti.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Laun eru samkvæmt kjarasamningi fjármálaráðherra og hlutaðeigandi stéttarfélags. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi. Ákvörðun um ráðningu byggist á innsendum gögnum og/eða umsögnum. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSS við ráðningar á stofnunina. Öllum umsóknum verður svarað. Umsóknir gilda í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja eru þrjú svið; heilsugæslusvið, sjúkrahússvið og hjúkrunarsvið. Starfsstöðvar eru í þremur sveitarfélögum; Grindavík, Reykjanesbæ og Vogum. Heilbrigðisstofnun Suðurnesja sinnir þjónustu í einu fjölmennasta heilbrigðisumdæmi á landinu, um 30.000 manns.

Starfshlutfall er 60-100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Andrea Klara Hauksdóttir - [email protected] - 4220500

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum