Hoppa yfir valmynd
SkrifstofustörfAusturlandHeilbrigðisstofnun Austurlands

Ritari - Neskaupstaður - Umdæmissjúkrahús Austurlands/sjúkradeild - SUMARAFLEYSING 2023

Ritari - Neskaupstaður - Umdæmissjúkrahús Austurlands/sjúkradeild - SUMARAFLEYSING 2023

Heilbrigðisstofnun Austurlands óskar eftir að ráða ritara í sumarafleysingar á sjúkradeild Umdæmissjúkrahúss Austurlands. Starfshlutfall er 80% eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Helstu verkefni og ábyrgð

Símsvörun og almenn vinna ritara á sjúkradeild.

Hæfniskröfur

Heilbrigðismenntun æskileg. Lögð er áhersla á metnað í starfi, stundvísi, skipulögð vinnubrögð, jákvæðni og sveigjanleika. Lipurð og áreiðanleiki í samskiptum eru skilyrði. Íslenskukunnátta áskilin.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og AFL Starfsgreinafélag hafa gert.

Umsóknum skal skilað rafrænt til HSA með því að fylla út umsóknarform á vefsíðu stofnunarinnar, www.hsa.is, undir flipanum Laus störf. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisstefnu HSA við ráðningar. Tóbaksnotkun/notkun rafretta er ekki heimil á vinnutíma innan HSA. HSA starfar á þremur fagsviðum; heilsugæslu-, hjúkrunar- og sjúkrasviði. Áhersla er lögð á samvinnu þvert á byggðarlög. Stofnunin þjónar rúmlega 11.000 íbúum frá Djúpavogi til Vopnafjarðar, auk ferðamanna sem sækja Austurland heim. Umdæmissjúkrahús Austurlands er í Neskaupstað. Á þjónustusvæði HSa eru auk þess fimm heilsugæslustöðvar, en alls eru starfsstöðvarnar ellefu talsins. HSa vill byggja þjónustu sína á mannvirðingu, þekkingu og á þverfaglegri samvinnu.

Starfshlutfall er 80%

Umsóknarfrestur er til og með 12.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Þórhalla Ágústsdóttir - [email protected]
Borghildur F. Kristjánsdóttir - [email protected]

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum