Starfsfólk í þvottahús í sumarafleysingar á HSN Blönduósi
Starfsfólk í þvottahús í sumarafleysingar á HSN Blönduósi
Heilbrigðisstofnun Norðurlands (HSN) Blönduósi óskar eftir starfsfólki í þvottahús í sumarafleysingar.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna við þvotta
- Tilfallandi verkefni sem tilheyra þvottahúsi
Hæfniskröfur
- Metnaður og ábyrgð í starfi
- Jákvætt viðmót og góðir samskiptahæfileikar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Stéttarfélagið Samstaða hafa gert.
Öllum umsóknum verður svarað. Áskilinn er réttur til að hafna umsóknum ef einstaklingar uppfylla ekki framangreind skilyrði. Ekki er unnt að ráða fólk yngra en 18 ára.
Tóbaksnotkun og notkun á rafsígarettum er ekki heimil á vinnutíma innan HSN.
Gildi HSN eru: Fagmennska - samvinna - virðing.
Starfshlutfall er 70-80%
Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Helga Margrét Jóhannesdóttir, Yfirhjúkrunarfræðingur - [email protected] - 432 4100