Lífeindafræðingar óskast á rannsóknarstofu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands - Selfossi
Lífeindafræðingar óskast á rannsóknarstofu Heilbrigðisstofnunar Suðurlands - Selfossi
Lífeindafræðingar óskast á rannsóknarstofu HSU á Selfossi frá 1. júní 2023 eða samkvæmt nánara samkomulagi.
Um er að ræða tvær 80-100% stöður. Annars vegar er um að ræða eins árs afleysingarstöðu vegna leyfis en hins vegar er um fast starf að ræða.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Rannsóknastofa HSU á Selfossi er með rannsóknir í blóðmeinafræði, klínískri lífefnafræði og sýklafræði.
- Rannsóknastofan sinnir þjónustu við deildir HSU á Selfossi og um allt Suðurland.
- Einnig þjónustar rannsóknastofan sjálfseignastofnanir á Suðurlandi, sjálfstætt starfandi sérfræðinga og Landspítala
Hæfniskröfur
- Starfsleyfi Landlækinsembættisins til þess að starfa sem lífeindafræðingur
- Góðir samskiptahæfileikar og jákvæðni
- Faglegur metnaður og ábyrgð í starfi
- Góð reynsla og hæfileiki til að vinna í teymi
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag lífeindafræðinga hafa gert.
- Um er að ræða vaktavinnu þar sem unnið er á tvískiptum vöktum (8-16 eða 16-24) alla daga vikunnar.
- Umsókninni þurfa að fylgja staðfestar upplýsingar um menntun, starfsleyfi og fyrri störf.
Starfshlutfall er 80-100%
Umsóknarfrestur er til og með 30.03.2023
Nánari upplýsingar veitir
Kolbrún Káradóttir, Yfirlífeindafræðingur - [email protected] - 8473448