Hoppa yfir valmynd
SérfræðistörfHöfuðborgarsvæðiðNorðurlandVegagerðin

Sérfræðingur við hönnunarstjórn Borgarlínu

Sérfræðingur við hönnunarstjórn Borgarlínu

Laust er til umsóknar starf sérfræðings á hönnunardeild Vegagerðarinnar í Garðabæ.

Vegagerðin vinnur að þróun, skipulagi, hönnun og framkvæmd samgöngumannvirkja fyrir fjölbreytta ferðamáta. Framundan eru umfangsmikil og spennandi verkefni við undirbúning Borgarlínu sem tilheyrir Samgöngusáttmála.

Vegagerðin leitar að öflugum einstaklingi sem mun sinna hönnunarstjórn Borgarlínu ásamt teymi verkefnastofu Borgarlínu.

Helstu verkefni og ábyrgð

Meðal verkefna er hönnunarstjórn með teymi alþjóðlegra ráðgjafa, taka þátt í gerð verðfyrirspurnar- og útboðsgagna, kostnaðaráætlana, rýni hönnunar og fjölbreyttum umbótaverkefnum á sviði hönnunar. 

Hæfniskröfur

  • Háskólanám í verk- eða tæknifræði M.Sc. próf æskilegt
  • Reynsla af hönnun fjölbreyttra ferðamáta 
  • Reynsla af gerð verklýsinga og kostnaðaráætlana æskileg
  • Hæfni í mannlegum samskiptum, vinna sjálfstætt og í teymisvinnu
  • Hæfni til að fylgja málum eftir og til að finna bestu lausnir hverju sinni. 
  • Skipulagshæfni, frumkvæði og faglegur metnaður
  • Góð íslensku- og enskukunnátta í rituðu og töluðu máli
  • Góð öryggisvitund

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Vegagerðin er eftirsóknarverður vinnustaður, stærsta framkvæmdarstofnun landsins með gríðarlega fjölbreytta verkefnaflóru. 
Áhugasamir einstaklingar, án tillits til kyns, eru hvattir til að sækja um.  Umsókn skal fylgja ferilskrá og ítarlegt kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og rökstuðningur um færni viðkomandi til að gegna starfinu og upplýsingar um árangur sem viðkomandi hefur náð og telur að nýtist í starfi. 

Tekið skal fram að umsóknir geta gilt í sex mánuði frá því að umsóknarfrestur rennur út.

Öllum umsóknum um starfið verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin.

Vakin er athygli á því að persónuupplýsingum um umsækjendur kann að verða miðlað til ráðningarstofu sem kæmi að vinnu við ráðningarferlið. Öll vinnsla og meðferð persónuupplýsinga í ráðningarferlinu fer fram í samræmi við persónuverndarstefnu sem birt er á heimasíðu Vegagerðarinnar, sjá hér https://www.vegagerdin.is/um-vegagerdina/markmid-og-stefnur/personuverndarstefna/

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Margrét Silja Þorkelsdóttir, forstöðumaður hönnunardeildar - [email protected] - 522 -1830

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum