Forstöðulæknir geðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Forstöðulæknir geðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri
Við leitum eftir öflugum leiðtoga með faglega hæfni og farsæla reynslu af stjórnun, rekstri og eflingu mannauðs til að leiða starfsemi geðlækninga á Sjúkrahúsinu á Akureyri. Viðkomandi þarf að búa yfir afburða hæfni í mannlegum samskiptum og stuðla að teymisvinnu innan deildar og við aðra stjórnendur og samstarfsaðila. Forstöðulæknir hefur yfirumsjón með geðlækningum og er leiðandi um fagleg málefni og stefnumótandi í greininni á sjúkrahúsinu.
Forstöðulæknir er leiðtogi og hefur þríþætta ábyrgð sem stjórnandi, þ.e.a.s faglega ábyrgð, starfsmannaábyrgð og fjárhagslega ábyrgð. Næsti yfirmaður er Ragnheiður Halldórsdóttir framkvæmdastjóri. Um er að ræða 100% stöðu og er staðan laus frá 1. maí 2023 eða eftir samkomulagi.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefur yfirumsjón með geðlækningum og er leiðandi og stefnumótandi í greininni á sjúkrahúsinu
- Samræmir störf yfirlækna og annarra sérfræðinga sem undir hann heyra til að tryggja skjólstæðingum sjúkrahússins bestu mögulegu þjónustu
- Fer með verkstjórn yfirlækna, sérfræðinga og annarra starfsmanna sem undir hann heyra
- Hefur eftirlit með og ber ábyrgð á skipulagi vinnu- og vaktafyrirkomulags og mönnun í samræmi við markmið um rekstur, fjárhagsramma og hagkvæma nýtingu mannauðs
- Starfar einnig sem sérfræðingur á sviðinu eftir því sem aðstæður leyfa
Hæfniskröfur
- Fullgilt íslenskt lækningaleyfi
- Sérfræðiréttindi í geðlækningum
- Reynsla af stjórnun, hæfni á sviði samskipta og samvinnu, frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað.
Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir.
Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Ragnheiður Halldórsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100
Erla Björnsdóttir
-
[email protected]
-
463-0100