Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðLandspítali

Hjúkrunarfræðingur á barna- og unglingageðdeild -BUGL

Hjúkrunarfræðingur á barna- og unglingageðdeild -BUGL

Hjúkrunarfræðingar óskast til starfa á Barna- og unglingageðdeild Landspítala. Ráðið verður í störfin eftir samkomulagi. Bæði er um starf á legudeild og göngudeild að ræða og verkefni taka mið af áhugasviði, færni og fyrri reynslu. Þannig geta störfin hentað bæði nýju og reynslumiklu fagfólki. Á göngudeild er unnið í dagvinnu en á legudeild er vinnufyrirkomulag vaktavinna en vaktabyrði er hófleg en einnig er möguleiki á að vinna eingöngu dagvinnu.  

BUGL samanstendur af tveimur deildum á Landspítala, legudeild og göngudeild. Þar er veitt sérhæfð og fjölskyldumiðuð heilbrigðisþjónusta við börn sem þarfnast sjúkrahúsþjónustu vegna geðræns vanda. Unnið er í þverfaglegum teymum og er mikil samvinna höfð við fagaðila í nærumhverfi.  
Á BUGL starfa um 100 einstaklingar í fjölskylduvænu starfsumhverfi. Starfsaðlögun er markviss og einstaklingshæfð og miklir möguleikar eru til starfsþróunar og sérhæfingar. Þjónustan er í stöðugri framþróun og kapp er lagt á styttingu biðtíma.  

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Starfar í þverfaglegu teymi að umönnun, greiningu og meðferð barna með geðrænan vanda. 
  • Fjölskylduvinna er einn lykilþátta starfsins.   
  • Tekur þátt í gerð, framkvæmd og endurmati einstaklingshæfðra meðferðaráætlana í samvinnu við fjölskyldur. 
  • Tekur þátt í umbótastarfi og þróun þjónustu. 
  • Stuðlar að góðum starfsanda og menningu sálræns öryggis. 

Hæfniskröfur

  • Íslenskt hjúkrunarleyfi 
  • Reynsla af meðferðar-, umönnunar- eða uppeldisstörfum 
  • Brennandi áhugi á veitingu geðheilbrigðisþjónustu við börn og fjölskyldur 
  • Framúrskarandi færni í samskiptum og teymisvinnu  
  • Faglegur metnaður, jákvætt hugarfar og frumkvæði 
  • Skipulagshæfni og öguð vinnubrögð  
  • Hæfni til að starfa samkvæmt öryggisverkferlum deildar 
  • Góð íslenskukunnátta, í mæltu og rituðu máli 
  • Góð almenn tölvukunnátta, geta til að læra nýjungar 
  • Kunnátta í tungumáli stórra samfélagshópa á Íslandi sem eiga íslensku ekki að móðurmáli er kostur 
  • Hreint sakavottorð 

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Fylgiskjöl skulu vera á pdf formi. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum. 

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.   

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Öllum umsóknum verður svarað.

Umsækjendur skulu framvísa nýju sakavottorði áður en til ráðningar getur komið, sbr. meginreglur laga um barnavernd sem m.a. koma fram í 2. mgr. 36. gr. laga nr. 80/2002. 

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Hjúkrunarfræðingur

 

Starfshlutfall er 80-100%

Umsóknarfrestur er til og með 04.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Sigurveig Sigurjónsd Mýrdal, Deildarstjóri - [email protected] - 543 4300
Tinna Guðjónsdóttir, Deildarstjóri - [email protected] - 543 4300

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum