Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaHöfuðborgarsvæðiðLandspítali

Sérfræðingur í lífefnaerfðafræði

Sérfræðingur í lífefnaerfðafræði

Laust er til umsóknar starf sérfræðings í lífefnaerfðafræði við erfða-sameindalæknisfræðideild (ESD) á klínískri rannsóknaþjónustu Landspítala. 

Á ESD fer fram fjölbreytt starfsemi. ESD veitir alhliða erfðaheilbrigðisþjónustu og hún er eina deildin sinnar tegundir á Íslandi. Deildin rekur sérhæfðar rannsóknarstofur til að greina erfðasjúkdóma, meta erfðaáhættu og í fósturskimun og nýburaskimun. Notaðar eru margvíslegar rannsóknategundir í lífefnaerfðafræði, sameindaerfðafræði, litningarannsóknum og erfðamengisrannsóknum. 

Á ESD er göngudeild og ráðgjafareining. Starfið er tengt lífefnaerfðarannsóknaeiningu. Á þeirri rannsóknarstofu eru greindir arfgengir efnaskiptasjúkdómar, fylgt eftir meðferð þeirra og nýburaskimun.

Á ESD fer fram öflug kennsla, þjálfun og vísindarannsóknir í samvinnu við ýmsa aðila innan og utan spítalans. Deildin er í formlegum tengslum við lífefna- og sameindalíffræðasvið læknadeildar Háskóla Íslands og í samstarfi við Íslenska erfðagreiningu. 

Vinnuandinn á deildinni einkennist af samvinnu, lipurð, stuðningi, metnaði og góðum liðsanda. Unnið er í öflugum þverfaglegum teymum innan og utan deildar og í nánu samstarfi við aðrar starfsemi spítalans.

Helstu verkefni og ábyrgð

  • Sérfræðiumsjón með lífefnaerfðarannsóknum 
  • Yfirferð tilfella, svörun rannsókna þ.m.t. túlkun og ráðgjöf tengd þeim 
  • Þróun og uppsetning nýrra rannsókna
  • Gæðaeftirlit 
  • Stefnumótun og þróun þjónustu í samráði við stjórnendur 
  • Önnur verkefni sem taka mið af þekkingu og reynslu viðkomandi 
  • Ráðgjöf á sérsviði viðkomandi
  • Kennsla og vísindarannsóknir

Hæfniskröfur

  • Sérfræðiþekking á klínískum lífefnaerfðarannsóknum
  • Vilji til frekari sérhæfingar í samráði við stjórnendur deildarinnar 
  • Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum 
  • Hæfni og geta til að vinna sjálfstætt og í teymi 
  • Reynsla í kennslu og vísindavinnu er æskileg

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og viðkomandi stéttarfélag hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins.

Umsókn fylgi náms- og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.

Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.   

Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.

Öllum umsóknum verður svarað.

Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, lífefnaerfðafræðingur 

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 11.04.2023

Nánari upplýsingar veitir

Jón Jóhannes Jónsson - [email protected] - 824 5917

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum