Framhaldsskólakennari í rafvirkjun
Framhaldsskólakennari í rafvirkjun
Laus er til umsóknar staða kennara í rafiðngreinum í Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi.
FVA er framsækinn og traustur framhaldsskóli sem starfar samkvæmt þremur gildum; jafnrétti, virðingu og fjölbreytileika. Nemendur eru um 450 og starfsfólk skólans um 70. Flestir nemendur koma frá Akranesi og nágrannasveitarfélögum og við skólann er starfrækt heimavist. Námsframboð er fjölbreytt bæði í bók- og verknámi og starfsmannahópurinn er kraftmikill og metnaðarfullur. Áhersla er lögð á lýðræðislega kennslu- og stjórnunarhætti og notalegan skólabrag í samræmi við gildi skólans.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Ábyrgð á kennslu og námsmati í bóklegum og verklegum rafiðngreinum
- Hlutast til um að skapa hvetjandi og faglegt námsumhverfi
Hæfniskröfur
- Iðnmeistari
- Menntun í rafvirkjun og/eða rafeindavirkjun
- Leyfisbréf kennara
- Kennslureynsla er mikilvæg
- Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.
Eftirfarandi gögn skulu fylgja umsókn:
- Kynningarbréf þar sem fram kemur hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
- Ferilskrá
- Afrit af prófskírteinum og leyfisbréfi
- Upplýsingar um umsagnaðaraðila sem má hafa samband við
Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum. Öllum umsóknum verður svarað. Tekið er mið af jafnréttisáætlun FVA við ráðningar í störf við skólann.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 27.03.2023
Nánari upplýsingar veitir
Steinunn Inga Óttarsdóttir, skólameistari
-
[email protected]
-
8555720
Trausti Gylfason, deildarstjóri í rafiðngreinum
-
[email protected]
-
6969549