Deildarlæknir Akranesi
Deildarlæknir Akranesi
Deildarlæknir óskast til starfa á handlækningadeild og slysadeild á Akranesi.
Handlækningadeildin er nýuppgerð 14 rúma deild. Á Akranesi er öflug skurðstofustarfsemi þar sem gerðar eru rúmlega 2000 skurðaðgerðir á ári og starfsemi á deildinni því mjög fjölbreytt.
Slysadeildin sinnir öllu Vesturlandi, bráða- og endurkomur. Þar er einnig göngudeildarþjónusta, t.d. lyfjagjafir, speglanir og innskriftir aðgerðarsjúklinga.
Góð laun í boði
Helstu verkefni og ábyrgð
- Hefðbundin deildarvinna
- Almenn bráðamóttökustörf vegna veikinda og slysa
- Inn- og útskriftir aðgerðarsjúklinga
- Stuðningur við sérnámsgrunnslækna
- Þátttaka í ýmsum verkefnum stofnunarinnar
Hæfniskröfur
- Starfsleyfi Embættis landlæknis
- Lögð er áhersla á faglegan metnað, jákvæðni og sveigjanleika
- Lipurð og áreiðanleiki í mannlegum samskiptum er skilyrði
- Góðrar íslenskukunnáttu er krafist
- Frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Sótt er um starfið gegnum hve.is eða starfstorg.is. Umsóknum skal skilað rafrænt
- Umsókn skal fylgja ítarleg náms og starfsferilsskrá, auk staðfests afrits af starfsleyfi
- Starfshlutfall er 100%, möguleiki á vöktum
- Ákjósanlegt er að viðkomandi geti hafið störf sem fyrst
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.04.2023
Nánari upplýsingar veitir
Fritz Hendrik Berndsen, Yfirlæknir
-
[email protected]
-
432-1000
Þórir Bergmundsson, Framkvæmdastjóri lækninga
-
[email protected]