Sérfræðilæknir í lyflækningum krabbameina
Sérfræðilæknir í lyflækningum krabbameina
Laust er til umsóknar starf sérfræðilæknis í lyflækningum krabbameina. Starfshlutfall er 100% og veitist starfið frá 1. september 2023 eða eftir samkomulagi. Starfið felur m.a. í sér teymisvinnu með öðrum starfsstéttum og sérgreinum spítalans. Leitast er við að hafa meðferð sjúklinga þannig að hver sjúklingur sem vísað er til sérgreinarinnar fái ábyrgan sérfræðilækni.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Vinna á legu-, dag- og göngudeild ásamt vaktþjónustu við krabbameinslækningadeild
- Vinna við samráðskvaðningar á aðrar deildir Landspítala og þátttaka í samráðsfundum
- Þátttaka í kennslu og vísindavinnu í samvinnu við yfirlækni
- Þróun á umbótaverkefnum og bættum verkferlum
- Ráðgjöf og þjónusta á sjúkrahúsum á landsbyggðinni er varðar krabbameinssjúklinga
Hæfniskröfur
- Íslenskt sérfræðileyfi í almennum lyflækningum með krabbameinslækningar sem undirsérgrein eða íslenskt sérfræðileyfi í krabbameinslækningum
- Breið þekking og reynsla í krabbameinslækningum
- Jákvæðni, sveigjanleiki og lipurð í samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Læknafélag Íslands hafa gert.
Fullt starf er bundið við sjúkrahúsið eingöngu sbr. grein 3.2.4 í gildandi kjarasamningi lækna og ríkisins.
Tekið er mið af jafnréttisstefnu Landspítala við ráðningar á spítalanum.
Í umsóknarformið skal skrá inn upplýsingar um:
» Fyrri störf, menntun og hæfni
» Félagsstörf og umsagnaraðila
Nauðsynleg fylgiskjöl:
» Vottað afrit af prófskírteinum og starfsleyfum.
» Ferilskrá þar sem tilgreind er reynsla af kennslu, vísindavinnu og stjórnunarstörfum.
» Yfirlit yfir birtar ritrýndar vísindagreinar sem umsækjandi er höfundur að. Umsækjandi skal annaðhvort setja upp Google Scholar aðgang og senda vefslóð að síðunni eða senda staðfestingu á birtum greinum á PubMed.
» Kynningarbréf með rökstuðningi fyrir hæfni og sýn á starfið.
» Afrit af umsókn um læknisstöðu hjá Embætti Landlæknis skal fylgja með umsókn. Umsækjandi sækir skjalið hér og vistar, fyllir það út og sendir með umsókn.
Viðtöl verða höfð við umsækjendur og byggist ákvörðun um ráðningu í starfið á þeim og innsendum gögnum. Öllum umsóknum verður svarað.
Landspítali er lifandi og fjölbreyttur vinnustaður þar sem yfir 6700 manns starfa í þverfaglegum teymum og samstarfi ólíkra fagstétta. Framtíðarsýn Landspítala er að þar sé veitt framúrskarandi heilbrigðisþjónusta byggð á vísindum, fagmennsku og umhyggju, öflugu fagfólki og studd með umgjörð og aðbúnaði sem sómi er að.
Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum.
Starfsmerkingar: Heilbrigðisþjónusta, Sérfræðilæknir
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023
Nánari upplýsingar veitir
Agnes Smáradóttir, yfirlæknir - [email protected] - 825 5028