Hoppa yfir valmynd
Kennsla og rannsóknirSuðurnesFjölbrautaskóli Suðurnesja

Framhaldsskólakennari í tréiðngreinum

Framhaldsskólakennari í tréiðngreinum

Áður auglýst staða kennara í tréiðngreinum við Fjölbrautaskóla Suðurnesja er framlengd, um fullt starf er að ræða. Ráðningartími er frá 1. ágúst 2023 og laun eru samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og KÍ hafa gert og nánari útfærslu í stofnanasamningi skólans.

Helstu verkefni og ábyrgð

Kennari í viðkomandi grein kennir og undirbýr kennslu, og metur nám í kennslugrein sinni samkvæmt markmiðum aðal- og skólanámskrár. Gerir námsáætlun, viðheldur faglegri hæfni sinni og hugar að tengslum við aðrar námsgreinar. Tekur þátt í samráði vegna starfs síns, ber ábyrgð á almennri upplýsingagjöf, situr kennarafundi og vinnur önnur störf sem honum eru falin og samrýmast gildandi kjarasamningum, lögum og reglugerðum.

Hæfniskröfur

Umsækjandi uppfyllir kröfur um menntun og hæfni samkvæmt lögum nr. 95/2019.

Kennsluréttindi á framhaldsskólastigi og menntun í viðkomandi fagi, trésmíði.

Kennslureynsla er mikilvæg.

Faglegur metnaður, frumkvæði, öguð vinnubrögð og jákvætt hugarfar.

Mjög góð samskiptahæfni, ríkur samstarfsvilji og  viðkomandi þarf að falla að þeim starfsmannahópi sem fyrir er í skólanum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Kennarasamband Íslands hafa gert.

Í umsókn þurfa að koma fram upplýsingar um menntun (staðfest afrit af prófskírteinum), afrit af leyfisbréfi til að nota starfsheitið kennari, upplýsingar um fyrri störf og tilgreina skal meðmælendur. Ákvörðun um ráðningu byggir á innsendum gögnum og viðtölum.

Tekið skal fram að skv. 4. mgr. 8. gr. laga framhaldsskóla nr. 92/2008 er óheimilt að ráða einstakling til starfa við framhaldsskóla sem hlotið hefur refsidóm fyrir brot á ákvæðum XXII. kafla almennra hegningarlaga. Áður en til ráðningar kemur þarf að liggja fyrir hreint sakavottorð.

Á heimasíðu skólans, www.fss.is, má finna frekari upplýsingar og sjá myndir úr skólalífinu.

Starfshlutfall er 100%

Umsóknarfrestur er til og með 05.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Kristján Pétur Ásmundsson - [email protected] - 4213100
Guðlaug Málfríður Pálsdóttir - [email protected] - 4213100

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum