Hoppa yfir valmynd
HeilbrigðisþjónustaNorðurlandSjúkrahúsið á Akureyri

Skurðhjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðingur á skurðstofu

Skurðhjúkrunarfræðingur/hjúkrunarfræðingur á skurðstofu

Laus er til umsóknar 90% staða hjúkrunarfræðings á skurðstofu Sjúkrahússins á Akureyri. Um framtíðarstarf er að ræða og er staðan laus frá 1. september nk. eða eftir samkomulagi. Um er að ræða dagvinnu auk bakvaktaskyldu. 

Næsti yfirmaður er Anna Margrét Tryggvadóttir, forstöðuhjúkrunarfræðingur á skurðstofu og sótthreinsun.

Helstu verkefni og ábyrgð

Í starfinu felst ábyrgð á öllum almennum verkefnum skurðhjúkrunarfræðinga samkvæmt lögum og reglugerðum. Einnig að unnið sé samkvæmt markmiðum hjúkrunar, deildarinnar og stofnunarinnar.

Á skurðstofum SAk er fjölbreytt starfsemi með allmargar sérgreinar lækninga. Þar starfar þéttur hópur fagfólks. Öflug einstaklingsmiðuð þjálfun með reyndum skurðhjúkrunarfræðingi fyrir nýliða.

Hæfniskröfur

  • Íslenskt starfsleyfi sem hjúkrunarfræðingur
  • Starfsreynsla í hjúkrun er æskileg
  • Sérnám í skurðhjúkrun eða starfsreynsla á þeim sviðum hjúkrunar sem nýtast í auglýstu starfi er kostur

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag íslenskra hjúkrunarfræðinga hafa gert.

Allar umsóknir þurfa að fara rafrænt í gegnum ráðningarkerfi ríkisins. Umsóknum skulu fylgja ítarlegar upplýsingar um nám og starfsferilskrá ásamt afriti af prófskírteinum og starfsleyfi, ef við á. Tekið er mið af jafnréttisstefnu Sjúkrahússins á Akureyri við ráðningar í störf á sjúkrahúsinu. Umsóknir geta gilt í 6 mánuði frá birtingu auglýsingar, sbr. 3. tl. 2. mgr. 2. gr. reglna nr. 1000/2019 um auglýsingar lausra starfa með síðari breytingum. Öllum umsóknum verður svarað. 

Sjúkrahúsið á Akureyri veitir alþjóðlega DNV-GL vottaða heilbrigðisþjónustu með ISO vottuðu gæðastjórnunarkerfi þar sem áhersla er á virka þátttöku allra starfsmanna til að uppfylla þær gæðakröfur sem gerðar eru í alþjóðlegum staðli sem sjúkrahúsið er vottað eftir. 

Samkvæmt mannauðsstefnu Sjúkrahússins á Akureyri er lögð áhersla á að ráða til starfa og halda í hæfileikaríka einstaklinga. Við val á starfsfólki er menntun, reynsla, færni og hæfni höfð að leiðarljósi. Mannauðsstefnan er leiðarljós stjórnenda og starfsfólks sem gerir sjúkrahúsið framsækinn og eftirsóknarverðan vinnustað, en hún byggir á grunngildum sjúkrahússins sem eru: ÖRYGGI, SAMVINNA og FRAMSÆKNI.

Starfshlutfall er 90%

Umsóknarfrestur er til og með 07.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Anna Margrét Tryggvadóttir - [email protected] - 463-0100
Erla Björnsdóttir - [email protected] - 463-0100

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum