Hoppa yfir valmynd
Kennsla og rannsóknirHöfuðborgarsvæðiðHáskóli Íslands

Prófessor í taugasjúkdómafræði

Prófessor í taugasjúkdómafræði

Laust er til umsóknar 50% starf prófessors í taugasjúkdómafræði á fræðasviði taugasjúkdómafræði við Læknadeild Háskóla Íslands.

 

Helstu verkefni og ábyrgð

Sem prófessor mun sá sem ráðinn verður uppfylla sína kennsluskyldu innan fræðasviðs taugasjúkdómafræði við Læknadeild Háskóla Íslands, þ.m.t. klínísk kennsla á Landspítala. Þá stundar hann rannsóknir í sinni fræðigrein á fræðasviðinu.

Hæfniskröfur

  • Doktorspróf á fræðasviðinu eða þekking og reynsla í samræmi við alþjóðleg viðmið fyrir viðkomandi starfsheiti á fræðasviðinu, staðfest með áliti dómnefndar.
  • Sérfræðileyfi í taugasjúkdómafræði og klínísk reynsla af taugasjúkdómafræði.
  • Rannsóknavirkni á fræðasviðinu, sjálfstæði og frumkvæði í rannsóknum.
  • Reynsla af háskólakennslu, fræðilegri og klínískri.
  • Reynsla af leiðsögn til æðri háskólagráðu.
  • Stjórnunarreynsla.
  • Reynsla af öflun styrkja til rannsóknarstarfa.
  • Góð samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum.

Frekari upplýsingar um starfið

Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag prófessora við ríkisháskóla hafa gert.

Við ráðningu verður miðað við, að sá er starfið hlýtur falli sem best að aðstæðum og þörfum Læknadeildar.

Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009. 

Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.

Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.  

  1. Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur 
  2. Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil 
  3. Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae) 
  4. Ritaskrá  
  5. Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
  6. Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
  7. Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við

Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.

Gert er ráð fyrir að ofangreint starf verði veitt sem fyrst, eða samkvæmt nánara samkomulagi.

Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.

Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.

Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands

Innan Háskólans eru fimm fræðasvið og deildir skólans eru 25 talsins. Háskóli Íslands býður fjölbreytt nám á öllum stigum og er eini háskóli landsins sem býður grunnnám og framhaldsnám á öllum helstu fræðasviðum. Jafnframt er Háskóli Íslands öflugur rannsóknaháskóli á alþjóðlega vísu og hafa vísindamenn Háskólans hlotið fjölmargar alþjóðlegar viðurkenningar fyrir vísindastörf sín.

Heilbrigðisvísindasvið Háskóla Íslands er í fararbroddi á sviði heilbrigðismála á Íslandi og gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu íslenska heilbrigðiskerfisins með menntun heilbrigðisstarfsmanna. Helstu sérfræðingar þjóðarinnar í heilbrigðisvísindum koma að kennslu og rannsóknum á sviðinu.

 

Starfshlutfall er 50%

Umsóknarfrestur er til og með 01.06.2023

Nánari upplýsingar veitir

Haukur Hjaltason, prófessor - [email protected] - 5431000
Þórarinn Guðjónsson, forseti Læknadeildar - [email protected] - 5254879

Smelltu hér til að sækja um starfið

Hafa samband

Ábending / fyrirspurn
Ruslvörn
Vinsamlegast svaraðu í tölustöfum