Lektor í leikskólafræði
Lektor í leikskólafræði
Laust er til umsóknar fullt starf lektors í leikskólafræði við Deild kennslu- og menntunarfræði á Menntavísindasviði Háskóla Íslands. Meðal viðfangsefna lektorsins verða kennsla og rannsóknir á einhverju af eftirtöldum sviðum menntunarfræði yngri barna: Forysta og skólaþróun; mat á leikskólastarfi; leikur, fjölmenning og skapandi starf.
Starfskyldur lektors eru kennsla, rannsóknir og stjórnun.
Helstu verkefni og ábyrgð
- Kennsla á grunn- og meistarastigi um leikskólafræði
- Leiðsögn með lokaverkefnum nemenda
- Rannsóknir á einhverjum af ofan nefndum sviðum menntunarfræða
- Þátttaka í þróun kennsluhátta á Menntavísindasviði
- Samstarf við skóla og aðrar menntastofnanir
- Þátttaka í þróun rannsókna innan HÍ og rannsóknarsamstarfi um kennslu- og menntunarfræði á alþjóðlegum vettvangi
Hæfniskröfur
- Doktorspróf á sviði kennslu- og menntunarfræði
- Leyfisbréf sem kennari (fyrir leik-, grunn- eða framhaldsskóla)
- Reynsla af starfi í leik- eða grunnskóla
- Reynsla af birtingu rannsóknaniðurstaðna á viðurkenndum vettvangi
- Reynsla af fjölbreyttum kennsluháttum
- Góð færni í íslensku
- Tölvukunnátta og reynsla af notkun stafrænna miðla
- Samstarfshæfni og lipurð í mannlegum samskiptum
Frekari upplýsingar um starfið
Laun samkvæmt gildandi kjarasamningi sem fjármála- og efnahagsráðherra og Félag háskólakennara hafa gert.
Rík áhersla er lögð á að sá sem starfið hlýtur hafi góða færni í kennslu og rannsóknum, og hafi skýra framtíðarsýn um hlutverk sitt í kennslu og rannsóknum á sviðinu. Horft verður til þess að ráðningin falli sem best að aðstæðum og þörfum deildar og sviðs.
Ráðið verður í starfið til fimm ára, með möguleika á ótímabundinni ráðningu að þeim tíma liðnum sbr. 3. mgr. 31. gr. reglna fyrir Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Um meðferð umsókna, mat á hæfi umsækjenda og ráðningu í starfið er farið eftir ákvæðum laga nr. 85/2008 um opinbera háskóla og reglna um Háskóla Íslands nr. 569/2009.
Umsækjendur skulu láta eftirfarandi gögn fylgja umsókn sinni.
- Kynningarbréf þar sem m.a. kemur fram hvernig umsækjandi uppfyllir hæfniskröfur
- Prófskírteini eða eftir atvikum vottorð um námsferil
- Leyfisbréf
- Akademíska ferilskrá (Curriculum Vitae)
- Ritaskrá
- Skýrslu um vísindastörf og önnur störf sem þeir hafa unnið
- Greinargerð um rannsóknar- og kennsluáform ef til ráðningar kemur
- Upplýsingar um mögulega umsagnaraðila sem hafa má samband við
Í umsókn skal koma fram hver ritverka sinna, allt að átta talsins, umsækjandi telur veigamest með tilliti til þess starfs sem um ræðir. Umsækjandi sendir eingöngu þessi ritverk sín með umsókn eða vísar til þess hvar þau eru aðgengileg á rafrænu formi. Þegar fleiri en einn höfundur stendur að innsendu ritverki skulu umsækjendur gera grein fyrir framlagi sínu til verksins. Umsóknargögnum sem ekki er hægt að skila rafrænt skal skila í tvíriti til vísinda- og nýsköpunarsviðs Háskóla Íslands, Sæmundargötu 2, 101 Reykjavík.
Öllum umsóknum verður svarað og umsækjendum tilkynnt um ráðstöfun starfsins þegar ákvörðun hefur verið tekin. Umsóknir geta gilt í sex mánuði frá lokum umsóknarfrests.
Við ráðningar í störf í Háskóla Íslands er tekið mið af jafnréttisáætlun skólans.
Vakin er athygli á málstefnu Háskóla Íslands.
Á Menntavísindasviði fer fram rannsóknartengt starfsnám fyrir kennara á leik-, grunn- og framhalds- og háskólastigi, uppeldis- og menntunarfræðinga, íþrótta- og heilsufræðinga, tómstunda- og félagsmálafræðinga, og þroskaþjálfa. Lögð er áhersla á rannsóknir og þróunarstarf sem unnið er í samstarfi við starfsvettvang.
Starfshlutfall er 100%
Umsóknarfrestur er til og með 02.08.2023
Nánari upplýsingar veitir
Kristín Jónsdóttir
-
[email protected]
Lára Rún Sigurvinsdóttir
-
[email protected]